04. apríl 2011 klukkan 14:09
Ír Open umferð 4
Loka leikur okkar í Ír Open 2011 fór fram í gær gegn Fc Ögna og lauk hann með 1 - 0 dramatískum sigri með marki á lokasekundu leiksins en dómarinn flautaði af meðan við fögnum markinu. Grímur Gunnarsson skoraði sigurmarkið eftir sendingu frá Sölva. Við lifum í smá von um að komast áfram en það skýrist allt í lokaumferð mótsins sem fer fram næsta sunnudag.
Staðan
| |
LIÐ |
L |
U |
J |
T |
MS |
MF |
MT |
S |
| 1. |
Sáá |
3 |
2 |
1 |
0 |
15 |
3 |
+12 |
7 |
| 2. |
Hönd Mídasar |
4 |
1 |
2 |
1 |
8 |
8 |
0 |
5 |
| 3. |
FC Metró |
3 |
1 |
1 |
1 |
7 |
14 |
-7 |
4 |
| 4. |
FC Ögni |
3 |
1 |
0 |
2 |
6 |
7 |
-1 |
3 |
| 5. |
KF Skellur |
3 |
1 |
0 |
2 |
4 |
8 |
-4 |
3 |
Lokaumferð
Sáá vs Fc Ögni
KF Skellur vs Fc Metró
Gylfi Davíðsson
28. mars 2011 klukkan 19:19
Ír Open umferð 3
Umferð 3 er nú lokið en þar mættum við SÁÁ mönnum í miklum baráttu leik sem endaði með 3 - 3 jafntefli. Eins og svo oft áður þá byrjum við alltof veikir og þorum lítið að halda boltanum en það vorum við sem náðum samt forystu með marki frá fyrliðanum Pétri Erni Ágústsyni eftir fast leikatriði þar sem boltinn barst til hans óvænt og hann skoraði laglega. Leikmenn SÁÁ gáfust ekki upp og náðu að jafna og var það einnig úr föstu leikatriði og held ég það sé mark númer milljón og eitt sem við fáum á okkur þannig, verðum að fara bæta föstu leikatriði en svona er þetta staðan var jöfn í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var mikið betri hjá okkur þrátt fyrir að hafa lent marki undir þá komum við til baka með mörkum frá Sveini Lárusi Hjartasyni og Pétri en markið frá honum var að dýrari gerðinni en Sáá náðu að jafna þegar um 18 mín voru eftir með laglegu marki. Bæði lið fengu færi til að klára leikinn en þar við sat 3 - 3 niðurstaðan.
Leikur okkar bætist með hverju leik og verðum bara halda áfram þótt möguleikarnir okkar séu ekki miklir í að komast áfram en eftir leikinn var ljóst að við þurfum að vonast eftir hagstæðum úrslitum úr 4 leikjum til að eiga séns.
Gylfi Davíðsson
21. mars 2011 klukkan 14:34
Ír Open umferð 2
Jæja eftir 5 taplausa mótsleiki kom að því að við töpuðum leik og var það á móti KF Skellur. Því miður þá áttum við einn af okkar versta leik í sögu félagsins sértaklega í fyrri hálfleik og því fór sem fór. En til að líta á einhverja bjarta hlið þá lendum við 2 - 0 undir og komum samt til baka og náum að jafna og sýnir það ákveðinn karakter en svekkjandi að missa þetta aftur niður og vorum við nálægt að því að stela sigri eða í það minnsta að ná að jafna en svona er þetta. Mörk okkar mann skoruðu Grímur Gunnarsson og Haukur Örn Gunnarsson.
Það er bara vonandi að menn komi bara enn sterkari til baka í næsta leik og æfi vel í vikunni því við eigum erfiðan leik fyrir höndum á móti Sáá næstkomandi sunnudag.
Lifi Mídas !
Staðan
| Lið |
Leikir |
Stig |
| 1. Sáá |
1 |
3 |
| 2. Ögni |
1 |
3 |
| 3. KF SKellur |
2 |
3 |
| 4. Hönd Mídasar |
2 |
1 |
| 5. FC Metró |
2 |
1 |
Gylfi Davíðsson
19. mars 2011 klukkan 18:25
Hönd Mídasar vs. KF Skellur
Sælir
Önnur umferð í Ír Open er á morgun og mætum við nágrönnum okkar í KF Skell. Síðustu 2 æfingaleikir okkar hafa endað með sigri gegn þeim en á morgun er fyrsti alvöru keppnis leikurinn við þá og ætlast ég að menn mæta 100% tilbúnir í þennan mikla derby leik!!!
Hópurinn á morgun.
Markið:
Runni
Aðrir:
Ari Fannar - muna mæta með TREYJU !!!!!!
Matti
Pétur (c)
Jonni
Stebbi
Haukur
Emil
Sölvi - muna mæta með TREYJU !!!!!
Tryggvi
Jói
Hjalti
Kristó
Biggi
Sindri
Grímur
Jörgen
Bubbi
Gylfi/Messi
Gylfi Davíðsson
07. mars 2011 klukkan 22:32
ÍR Open 2011
Blessaðir drengir, ætlum við að reyna endurlífga þessa síðu. Allar upplýsingar um liðið, æfingar, leiki og fleira er að finna hér á síðunni.
Eins og allir eiga að vita byrjaði Ír Open síðasta sunnudag með leik gegn FC Metró og endaði hann með 2-2 jafntefli, mörkin okkar skoruðu Matthías Már Matthíasson og Tryggvi Tómasson.
Ekkert spes jafntefli en sættum okkar við þetta úr því sem komið var, en gaman hefði verið að stela þessu í lokinn þegar wonderkid Guðjón Petersen var nálægt því að skora.
B-riðill
| 1. |
Hönd Mídasar |
| 2. |
FC Metró |
| 3. |
KF Skellur |
| 4. |
SÁÁ |
| 5. |
UFC Ögni |
2. Efstu liðin áfram
Upplýsingar um mótið er að finna
HÉR Allir leikir spilaðir á gervigrasi ÍR.
LEIKIR
Gylfi Davíðsson